Michael (sem nú er í Tilbrigðaverkefninu) og Rósa Marta héldu fyrirlestur á málþingi M.A.-nema í námskeiðinu Tilbrigði í setningagerð í desember síðastliðnum sem bar heitið: „Ég er aldrei búinn að nota
búinn að.“ Er hjálparsögnin
hafa í útrýmingarhættu? Þar fjölluðu þau um aukna notkun
vera +
búinn að á kostnað
hafa + lh.þt. (sbr. dæmi eins og
Ég er aldrei búinn að sjá þessa mynd þar sem flestum þætti líklega eðlilegast að segja
Ég hef aldrei séð þessa mynd).
Ég nota
búinn að mjög mikið og hafði kannski þess vegna lítið pælt í þessari notkun áður en ég hlustaði á fyrirlesturinn. Því fannst mér svolítið athyglisvert að ég heyrði a.m.k. einu sinni (ég hlustaði ekki nógu grannt eftir þessu) á síðasta kosningakvöldi formann einhverrar kjörstjórnar segja: „Nú er búið að telja X atkvæði ...“ Oftast var þó sagt: „Talin hafa verið X atkvæði ...“
Þetta fannst mér merkilegt þar sem þeir sem tilkynna nýjustu tölur í kosningum til Alþingins lesa þær upp af blaði og reyna væntanlega að vanda mál sitt (og þetta
búinn að þykir örugglega ekkert sérstaklega vandað) enda bíður þjóðin með öndina í hálsinum; sumir hlusta eftir úrslitunum, aðrir eftir einhverju allt öðru.